Imbran hefst á morgun - júhú!

Imbrudagra hefjast.
Imbrudagra hefjast.

Kennararnir Fríða, Tinna, Ingvar og Auður námsráðgjafi létu veðrið ekki stoppa sig í hádeginu sunnudaginn 24.febrúar en þá mættu þau í skólann og máluðu hann ekki rauðan, nei þau máluðu innganginn að skólanum í öllum regnbogans litum. Tilefnið? Imbrudagar FG, sem hefjast á þriðjudaginn, en yfirskrift þeirra er „Hinsegin dagar“. Afar fjölbreytt dagskrá fylgir þemanu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Allt nær þetta svo hápunkti með frumsýningu leikrits á miðvikudag og árshátíð um kvöldið.