Kjósa kjósa kjósa!

Kosningar í embætti á vegum NFFG standa nú yfir
Kosningar í embætti á vegum NFFG standa nú yfir

Kosningar til trúnaðarstarfa á vegum nemendafélags FG (NFFG) standa nú yfir.

Skólinn er þakinn auglýsingum og allskonar kynningar og annað slíkt er í gangi.

Fjöldi fólks er í framboði og er hart slegist um sum embætti, en minna um önnur.

Kosningarnar eru rafrænar, fara fram í gegnum INNU, hefjast kl. 17.00 miðvikudaginn 3.maí.

Kosning stendur yfir til miðnættis fimmtudaginn 4.maí og úrslit verða formlega tilkynnt föstudaginn 5.maí á sérstökum viðburði kl. 14.30 (að lokinni kennslu).

ALLIR AÐ KJÓSA og nýta atkvæðisréttinn.