Komdu í Gettu betur!

Verið er að
Verið er að "smala" í lið FG í Gettu betur, en keppnin hefst bráðlega.

Eins og nemendur hafa séð á veggjum skólans er verið að leita að þátttakendum í Gettu betur lið FG.

Um er að ræða vinsælustu spurningakeppni landsins, þar sem framhaldsskólar landsins takast á og keppa um "Hljóðnemann".

Keppnin fagnar 40 ára afmæli í ár en sú fyrsta fór fram á RÚV árið 1986. Keppnin byrjar í úrtvarpi, á Rás 2, en færist yfir í sjónvarp þegar átta liða úrslit byrja. Alls eru 38 framhaldsskólar skráðir á landinu.

Núverandi spyrill í Gettu betur er íþróttafréttakonan Helga Margrét Höskuldsdóttir, en hún er einmitt stúdent frá FG.

Svokölluð "opin æfing verður haldin kl. 15.30 í stofu v302 og eru áhugasamir vinsamlega beðnir um að mæta þar.