LEG frumsýnt á föstudaginn (24/3:frestað vegna hertra sóttvarnaraðgerða)

LEG er nýr söngleikur eftir Hugleik Dagsson, frumsýndur föstudaginn 26.mars í FG. Leikstjóri er Birn…
LEG er nýr söngleikur eftir Hugleik Dagsson, frumsýndur föstudaginn 26.mars í FG. Leikstjóri er Birna Rún Eiríksdóttir, fyrrum nemandi í FG.

Nú er vor (eða þannig) og það þýðir LEIKHÚS í FG, en á föstudaginn frumsýnir Verðandi, leikfélag FG, söngleikinn LEG eftir hinn hnífskarpa Hugleik Dagsson. Tjaldið verður dregið frá kl. 20.00 í Urðarbrunni.

Frumsýning leikrits er yfirleitt einn af hápunktum skólaársins og því mikil spenna í loftinu, kannski pínu sviðsskrekkur og allt.

LEG fer svo í almennar sýningar laugardaginn 27.mars og eru sýningar klukkan 20.00. Miðasla er á TIX.is.