Lokasýning myndlistarnema FG

Myndlistanemar í FG
Myndlistanemar í FG

Verið hjartanlega velkomin á samsýningu nemenda í lokahópum listnámsbrautar FG sem opnar miðvikudaginn 1. maí kl. 16:00 í Gróskusalnum við Garðatorg. Byrjað verður á  tískusýningu Fata- og Textílhönnunarbrautar á Garðatorginu, en síðan verður farið upp á aðra hæð og sýning Myndlistarbrautar verður opnuð. Sýningin er opin kl. 13 – 18  dagana 2. og 3. maí.
Sýningin er afrakstur vinnu 3 nemenda í lokaáfanga á Fata- og Textílhönnunarbraut og 15 nemenda í lokaáfanga á Myndlistarbraut. Viðfangsefni þeirra eru ólík og hefur hver og einn þróað eigin aðferðir og efnistök.