Ótakmörkuð sköpunargleði - svínslegir skúlptúrar

Á vorönn létu kennararnir Guðbjörg Guðjónsdóttir og Sari Cedergren nemendur sína í áföngum LÍFF3le05 (lífeðlisfræði) og SKÚL2gr05 (skúlptúr) vinna saman nýstárlegt tilraunaverkefni. Tilgangurinn var að skoða og kryfja líffæri úr svínum og æfa sig í afsteyputækni. Verkefnið gekk framar vonum og hér eru nokkrar myndir frá vinnuferlinu.  Ekkert er of ögrandi fyrir FG!