"Raddir sem heyrast ekki" var sýnd á RÚV og UngRiff (skjáskot).
RÚV sýndi stutt-heimildarmyndina "Raddir sem heyrast ekki“ þann 21.október síðastliðinn, á Bleika deginum.
Kvikmyndin er eftir Ísak Breka Gíslason, en hann er nemandi við FG og er á leiklistarbraut. Í myndinni, sem var lokaverkefni, er rætt við ungt fólk sem er aðstandendur krabbameinssjúklinga og fjallað um þá lífsreynslu.
Í kynningu á ruv.is segir: ,,Heimildarmynd frá 2026 um líf ungra aðstandenda krabbameinssjúklinga. Einlæg viðtöl og persónuleg frásögn varpa ljósi á hvernig veikindi foreldris geta umbreytt heimi ungs einstaklings.“
Myndin var einnig sýnd fyrir skömmu á UngRiff-kvikmyndahátíðinni, en þar sýna ungir og upprennandi leikstjórar verk sín. Tók Ísak þátt í pallborðsumræðum (einnig kallað "Q&A") í sambandi við viðburðinn.
Óhætt er að mæla með þessari áhrifaríku og vel gerðu mynd, en hún er aðeins 13 mínútur að lengd. Hún sýnir okkur inn í heim sem ungt fólk er sennilega ekki mikið að velta fyrir sér dags daglega, en er vissulega til staðar.
Að meðaltali greinast um 2000 Íslendingar á ári með krabbamein, samkvæmt opinberum tölum. Þau eru af ýmsum tegundum. Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhverntímann á ævinni. Eru því forvarnir og meðferð gegn krabbameini meðal mikilvægustu verkefna heilbrigðiskerfisins. Sem og aðstoð og úrræði fyrir aðstandendur.
Hér er þráður á myndina: https://www.ruv.is/sjonvarp/dagskra/ruv/2026-10-21/5513158
Til hamingju Ísak!
