Sex í sveit - farsi frá Verðandi

Stjórn Leikfélagsins Verðandi
Stjórn Leikfélagsins Verðandi

Leikfélagið Verðandi er einn af burðarásum félagslífsins í FG og skólaárið 2026-2027 verðu þar engin undantekning. Um þessar mundir eru í gangi prufur fyrir haustleikrit félagsins. Að þessu sinni var brugðið á það ráð að fá unga og hressa leikstjóra til þessa leikstýra.

Verkið sem sett verður upp heitir "Sex í sveit" og fjallar um hóp af fólki sem fer í sumarbústað og þar gerist ýmislegt. Höfundurinn er Frakkinn Marc Camoletti, en þýðinguna á handritinu gerði einn frægasti grínleikari Íslands, Gísli Rúnar Jónsson (1953-2020).

Stundum eru leikrit af þessu tagi kölluð "farsi" og verður handritið fært til nútímahorfs, með yngri áhorfendur í huga. Stefnt er á að ,,yngja brandarana" kom fram í samskiptum við Verðandi.

Einnig mun Verðandi standa fyrir svokölluðu "Open Mic" og fleiru sem verður hluti af sérstakri ,,Verðandi-viku" sem hefst 21.september.

Á OpenMic fær fólk hljóðnema í hendurnar og lætur svo gamminn geisa. Þeir sem vilja vera með atriði eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við leikfélagið.

Pósturinn er: verdandileikfelag@gmail.com