Sex í sveit sýnt

Sex í sveit er(u) að fara á sviðið í FG.
Sex í sveit er(u) að fara á sviðið í FG.

Leikfélag Verðandi sýnir gamanleikritið "Sex í sveit" á sérstakri nemendasýningu þann 12.nóvember næstkomandi. Sýnt er í Urðarbrunni og hefst sýningin kl.20.00, en húsið opnar hálftíma fyrr.

,,Sex í sveit" er sagt vera ,,sprenghlægilegt gamanleikrit" og er söguþráðurinn nokkuð villtur: ,,Hvað gerir þú þegar viðhaldið þitt mætir upp í bústað á meðan kærastan þín er á svæðinu? Benni hefur skipulagt umfangsmikla helgi uppi í bústað með viðhaldinu sínu Sóleyju og vini sínum Ragnari eftir að Þórunn, kærasta Benna, er á leið út á land að heimsækja móður sína.

Góð ráð verða dýr þegar Þórunn hættir við að fara og Benni neyðist til að hylja sannleikann fyrir Þórunni. Ekki hjálpar til þegar tveir pantaðir kokkar mæta á svæðið og dragast inn í misskilninginn sem aldrei virðist taka enda. Allir þykjast vita allt, en enginn veit í raun neitt."

Að lokinni nemendasýningu fer leikritið svo í almennar sýningar, en hér má nálgast miða. Þetta verður fjör!