Söngleikur úr kvikmyndinni "Clueless" á fjalir FG

Clueless
Clueless

Leikfélag FG, Verðandi, hefur staðið fyrir mögnuðum sýningum undanfarin ár og er frumsýning leikrits jafnan einn af hápunktum skólaársins. Nú er það opinbert að leikverk árins 2019 verður söngleikur byggður á unglingamyndinni "Clueless" sem Alicia Silverstone lék aðalhlutverkið í. FG.is skilst að prufur séu í gangi eða jafnvel búnar. Leikstjóri er Anna Katrín Einarsdóttir. Sjá kynningarmyndband hér.