Söngleikurinn Clueless frumsýndur

Söngleikurinn Clueless var frumsýndur á Imbrudögum. Það er að sjálfsögðu Verðandi, leikfélag FG, sem stendur að sýningunni. Í henni kemur fram fjöldi nemenda og glæðir sýinguna lífi og fjöri. Um leikstjórn sá Anna Katrín Einarsdóttir, höfundur dansa er  Sara Margrét Ragnarsdóttir, Viktor Demirev hannaði sviðsmynd og tónlistina samdi Hildur Kristín Stefánsdóttir.