Spennufall eftir Sex í sveit!

Áhöfnin á
Áhöfnin á "Sex í sveit" glöð í bragði, frumsýning yfirstaðin og alles. Miðar fást á Outro.is

Það er alltaf mikið verkefni að frumsýna leikrit og oft fylgir því mikil spenna.

Til að mynda ekki óalgengt að frumsýningar tefjist og hefjist þar af leiðandi ekki á réttum tíma. Stundum þurfa áhorfendur að bíða eftir "góðgætinu".

Ekki veit ritari hvort það var raunin þegar Leikfélagið Verðandi frumsýndi gamanleikinn "Sex í sveit" í síðustu viku, fyrst á nemendasýningu þann 12.nóv og svo á almennri sýningu þann 13.nóvember.

En ritari heyrði líka frá ábyrgum aðila að ,,sýningin hefði algerlega smollið saman" á síðustu metrunum. Það er frábært.

Auðvitað voru svo teknar myndir í "spennufallinu" og eins og sjá má, þá eru allir glaðir. Þannig á lífið líka að vera. 

Það eru nokkrar sýningar eftir og hér eru miðar, drífa sig!