Styrktu Ljósið

Alls söfnuðust um 200.000 krónur fyrir Ljósið.
Alls söfnuðust um 200.000 krónur fyrir Ljósið.

Nemendur úr Viðburðastjórnun í FG, héldu svokallað ,,bakgarðs-písl-hlaup" til styrktar Ljósinu fimmtudaginn 14. maí síðastliðinn.

Þetta var skemmtilegur og fjölskylduvænn viðburður með góðri stemmingu og miklu fjöri. Viðburðurinn var ætlaður öllum, hvort sem markmiðið var að keppa eða einfaldlega hafa gaman.

Hlaupið var að hámarki í 2 klukkustundir eða 8 hringir. Takk allir sem komu og styrktu Ljósið í leiðinni og alls söfnuðust um 200.000 krónur. Það verður bara að teljast gott.

Á vefsíðu Ljóssins stendur: ,,Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt."