Svíinn Basshunter skemmtir á síðasta balli skólaársins

Mikil eftirvænting ríkir nú í FG, en miðvikudaginn 10.apríl verður síðast ball skólaársins (og í tveggja anna kerfinu). Að þessu sinni er gleðin haldin í Reiðhöllinni í Víðidal. Aðalnúmerið er svo ekki minni aðili en sænski listamaðurinn Basshunter, sem á sínum tíma sló í gegn með laginu Boten Anna. Hið rétta nafn Basshunter er Jonas Erik Altberg og hefur hann gefið út sex plötur. Uppselt er á ballið og hefur verið þétt röð í miðasöluna, eins og myndin sýnir.