Taka tvö - LEG - frumsýning

Frumsýna á LEG 24.apríl kl. 19.00 í Urðarbrunni
Frumsýna á LEG 24.apríl kl. 19.00 í Urðarbrunni

Það kannski tekst í þetta sinn? Í ljósi nýrra sóttvarnarreglna frá yfirvöldum hefur verið sett á ný dagsetning fyrir frumsýningu á söngleiknum LEG, eftir Hugleik Dagsson.

Flestir vita að upprunalegu frumsýningunni var frestað fyrir tæpum þremur vikum vegna kóvid. Nú er stefnt á frumsýningu laugardaginn 24.apríl kl. 19.00. Uppselt er á þá sýningu.

Miðasala er enn á TIX.is, þetta verður að takast núna, við krossum okkur í bak og fyrir.