Tónleikar: GDRN-Frikki Dór og Jói P og Króli - þriðjudagur

GRDN, Frikki Dór og Jói P og Króli spila í Urðarbrunni á þriðjudagskvöld
GRDN, Frikki Dór og Jói P og Króli spila í Urðarbrunni á þriðjudagskvöld

Það verður úrvalslið listamanna sem stígur á svið í Urðarbrunni næstkomandi þriðjudagskvöld, en þá verða haldnir tónleikar í tengslum við þá fordómadagskrá, sem er í gangi í skólanum.

Það er ekki á hverjum degi sem tónleikar af þessari stærðargráðu fara fram í FG og því mjög ánægjulegt.

Um er að ræða GDRN, Frikka Dór og Jóa P og Króla, en Jói P er einmitt stúdent frá FG. Allt tónlistarmenn í fremstu röð.

Tónleikarnir hefjast kl. 20. 00 og er frítt inn. VEL MÆTT!