Upphaf haustannar 2022

Kennsla haustið 2022 hefst í FG fimmtudaginn 18.ágúst
Kennsla haustið 2022 hefst í FG fimmtudaginn 18.ágúst

Kæru nemendur - velkomin í skólann á haustönn 2022

Opnað verður fyrir stundatöflur ekki síðar en þriðjudaginn 16. ágúst.  

Töflubreytingar verða eingöngu á rafrænu formi og er hægt að sækja um breytingar frá þeim tíma sem stundatöflur eru opnar. Farið er í töflubreytingar hægra megin á upphafsíðu Innu. Óskir um töflubreytingar verða afgreiddar eins hratt og hægt er. Ekki er gert ráð fyrir að nýnemar breyti töflum nema í undantekningartilfellum og útskriftarnemendur breyta sínum töflum í samráði við Snjólaugu Elínu Bjarnadóttur aðstoðarskólameistara. Hægt er að sækja um töflubreytingar til og með 22. ágúst. 

Nýnemakynning fer fram 17. ágúst kl. 10.00 í Urðarbrunni.  

Kennsla hefst samkvæmt hraðtöflu 18. ágúst og verður skólinn settur sama dag. Upplýsingar um hraðtöflu verða sendar í tölvupósti til nemenda og á heimasíðu skólans.

Kynningarfundur forráðamanna nýnema fer fram miðvikudaginn 24. ágúst kl. 17.30. Í kjölfar fundarins fer fram aðalfundur Foreldraráðs FG.

Kristinn Þorsteinsson skólameistari