Askur og Laddi í fréttunum

Askur og Laddi eru léttir á fæti.
Askur og Laddi eru léttir á fæti.

Skemmtilegt innslag birtist í fréttum RÚV þann 19.apríl síðastliðinn um þá Ask og Ladda sem eru hundarnir hans Villa tölvumanns.

Þeir  eru nú opinberlega orðnir hluti af hópi starfólksins í FG (askur@fg.is og laddi@fg.is).

Askur og  Laddi vinna mest á Sérnámsbrautinni, komnir með ,,fastráðningu" og njóta mikilla vinsælda þar. Rætt var við Villa, Hrafnhildi sérkennara og nemendur á Sérnámsbrautinni. Voff, voff!