- Námið
- Þjónusta
- Skólinn
- Fjarnám
- Spurt & Svarað
Gettur betur-lið FG; Aron, Brynja og Jónas, lauk keppni í Gettu betur síðastliðinn föstudag, þegar liðið laut í lægra haldi fyrir MR í beinni útsendingu á RÚV.
Þar með er ljóst að lið MR er komið í úrslit og einnig nokkuð ljóst að MR mun vinna þessa keppni, eiginlega ekkert annað en kraftaverk getur komið í veg fyrir það,
Núna á föstudaginn mætast svo Verkmenntaskóli Austurlands og Fjölbrautaskóli Suðurlands í seinni undanúrslitum, það lið sem sigrar, mætir því MR. En - kraftaverk hafa gerst.
Við þökkum hins vegar liði FG fyrir frábæra skemmtun og er árangurinn fínn, gengur bara vonandi enn betur að ári. Hlökkum til.
Takk fyrir allt: Aron, Brynja og Jónas!
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - fimmtudaga
kl. 08:00 - 15:30, föstudaga frá kl. 08:00 - 15:00
Skólabraut 6 | 210 Garðabæ
Ritstjóri: Tinna Ösp Arnardóttir
Vefstjóri: Guðmundur Á. Eiríksson