Lögguheimsókn: Símon, Lea, Unnar og Jónas Orri fræddu nemendur um störf lögreglunnar
Það var troðfullt þegar fulltrúar frá lögreglunni mættu í tíma í afbrotafræði þann 19.mars síðastliðinn og fræddu nemendur um störf lögreglunnar. Um var að ræða tvo lögreglumenn, Símon og Unnar og þá var með í för starfsmaður Upplýsingadeildarinnar, Jónas Orri. Nemi í afbrotafræði, Lea, var einnig með.
Símon og Unnar fóru í gegnum helstu þætti starfsins, þjálfun, ,,lögguprófið“ og þá héldu þeir einnig sýnikennslu í handtöku þar sem handjárn voru notuð á annan kennara áfangans, sem gripinn var til handargagns.
Símon, sem meðal annars hefur unnið sem lögga í Vestmannaeyjum, mætti í ,,lögguvestinu“ - en það er með alls 12 kíló af búnaði, allt frá piparspreyi til löggukylfunnar, sem hann sýndi líka (sjá mynd). Ekkert grín að burðast með vestið, en nauðsynlegt: ,,Vestið er skothelt," tók Símon fram.
Jónas Orri fór síðan yfir ýmsa tölfræði sem tengist glæpum og hvernig nota má tölfræðilegar upplýsingar til þess að leysa glæpi. Sýndi hann meðal annars svokallað ,,hitakort“ yfir innbrot í einu hverfa borgarinnar.
Fram kom hjá þeim að langmest sem lögreglan gerir eru svokölluð ,,verkefni“ og eru langflest þeirra ekki tengd glæpum. Algengustu brot á Íslandi eru hins vegar umferðarlagabrot.
Spurðu nemendur fjölda spurninga og alls stöldruðu þau fjögur við í fulla tvo tíma, frá kl.13.10 til 15.15, án hlés! Góð, skemmtileg og fræðandi heimsókn.
