Erasmus-verkefni lokið (í bili)

Auðvitað var farið á Þingvöll (Gullna hringinn).
Auðvitað var farið á Þingvöll (Gullna hringinn).

Hópur nemenda frá Noregi og Spáni var staddur í FG í Erasmus-verkefni dagana 12-19.apríl síðastliðinn. Gistu þeir hjá fjölskyldum, komu í skólann, ferðuðust og kynntu sér lifnaðarhætti okkar Íslendinga, meðal annar sundmenninguna. Þá voru ísbúðir kannaðar, sem og fleiri áhugaverðir staðir.

Verkefnið snýst um sögu, menningu og fleira hjá þessum þremur þjóðum. Síðasta kvöldið var haldið s.k. ,,Pálínuboð" og karaoke, þar sem vel var tekið á'ðí. Veðrið lék við þátttakendur, enda vorið komið. Er það ekki?