Fengu styrk frá KÍ

Harpa, Tinna og Fríða fengu styrk frá KÍ til rannsókna
Harpa, Tinna og Fríða fengu styrk frá KÍ til rannsókna

Þær Tinna Ösp Arnardóttir, Fríða Gylfadóttir og Harpa Valdimarsdóttir fengu fyrir skömmu styrki á vegum Rannsóknarsjóðs Kennarasambands Íslands (KÍ). Markmið hans er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna KÍ.

Umsóknir þetta árið voru ellefu talsins og hlutu sex þeirra brautargengi. Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni er 7.704.000 krónur.

Harpa Valdimarsdóttir fékk um 1.2 milljónir og heitir verkefni hennar ,,Starfendarannsókn á breytingu kennsluhátta og námsmats."

Fríða og Tinna fengu svo 1,5 milljónir í verkefni sem heitir: ,,Nemendur með í ráðum: þróun gagnvirks námsmatssamnings með gervigreind.“ Þeim er óskað innilega til hamingju og góðs gengis í þessu.