Meira að lesa! Katla Ingibjörg Kristjánsdóttir varð dúx á haustönn í FG. Til hamingju!
Brautskráning á haustönn fór fram í Urðarbrunni í FG, föstudaginn 20.nóvember síðastliðinn.
Alls voru 39 sem brautskráðust og af þeim voru 11 af félagsvísindabraut, átta af hönnunar og markaðsbraut, einnig átta af viðskiptabraut, sex af listnámsbrautum, þrír af íþróttabraut, tveir af náttúrufræðibraut og einn af alþjóðabraut.
Það var einmitt neminn af alþjóðabraut sem varð dúx, Katla Ingibjörg Kristjánsdóttir. Hún fékk líka verðlaun fyrir góðan námsárangur í íslensku, félagsgreinum og erlendum tungumálum.
Þess má svo einnig geta að Katla fór til Japan á meðan náminu stóð og lærði þar slatta í japönsku. Geri aðrir betur.
Flutt voru tónlistaratriði og ræðu nýstúdents flutti Petrún Anna Pálsdóttir (neðri mynd). Hún var á sínum tíma í skólanum mjög virk í félagslífinu, stjórnaði meðal annars Leikfélaginu Verðandi. Það hefur í gegnum tíðina sett sterkan og góðan svip á skólastarfið.
Nú standa einmitt yfir prufur í næsta leikrit (söngleik) sem sýnt verður á IMBRU-dögum næsta vor. Það byggir á hinni margfrægu ,,eitís“- kvikmynd FAME (afsakið slettuna).
Að brautskráningu lokinni hurfu síðan nýstúdentarnir á braut með ættingjum og vinum, í veislur, eða annað álíka. FG óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.
