Flott í frumkvöðlafræði

Hlýja, Krílabitar og Hafbit efst. Allir fyrir neðan. Vel gert!
Hlýja, Krílabitar og Hafbit efst. Allir fyrir neðan. Vel gert!

Nemendur í frumkvöðlafræði úr FG gerðu það gott í keppni meðal frumkvöðlafyrirtækja, sem fram fór í Smáralind fyrir skömmu.

Alls voru 150 fyrirtæki og 620 nemendur úr 18 framhaldsskólum um land allt sem sýndu vörur og hugmyndir. Mikil gróska í þessu.

Okkar fólk fékk þessi verðlaun: Hafbit fyrir besta ,,sjó-binessinn“ (endurnýting á fiskroði — gert í fiskiroðssnakk), Hlýja fyrir frumlegasta sölubásinn (saunahattur úr íslenskum afurðum) og Krílabitar fyrir besta matvælafyrirtækið.

Hugmynd þess er barnamatur 6–12 mánaða gömul börn. Hann er frosinn og maukaður og á að vera auðveldur að hita. Hvaða nútíma foreldrar vilja ekki svoleiðis?

FG óskar öllum til hamingju.