Gettu betur: FG mætir FVA í sjónvarpinu á föstudaginn

Yfirleitt er mikið stuð í sjónvarpsútsendingum Gettu betur (skjáskot af RÚV.is)
Yfirleitt er mikið stuð í sjónvarpsútsendingum Gettu betur (skjáskot af RÚV.is)

FG mætir FVA (Fjölbrautaskóla Vesturlands) í sjónvarpskeppni Gettu betur á föstudagskvöldið kl. 20.00.

Keppnin fer fram í sjónvarpi allra landsmanna, RÚV. Sjónvarpskeppnin hófst síðastliðinn föstudag, en þá vann Versló viðureign gegn Fjölbrautaskóla Suðurlands nokkuð auðveldlega.

Þau Dagmar, Kjartan og Þráinn hafa verið við stífar æfingar að undanförnu og hafa þær gengið vel að sögn Dagmar og er létt yfir liðinu. Það skýrist því á föstudaginn hvort lið FG kemst í fjögurra liða úrslit.

Allir að horfa – áfram FG!