Góðgerðarvika NFFG 2026

NFFG stendur fyrir góðgerðarviku
NFFG stendur fyrir góðgerðarviku

Góðgerðarvika NFFG stendur nú yfir og er markmið hennar, eins og nafnið gefur til kynna að gera góðverk og safna fjármagni.

Það er gert með því að taka þátt í svokölluðum ,,áskorunum" og láta peninga rakna af hendi til góðs málefnis.

Í ár rennur það fé sem safnast í gegnum góðverkin til minningarsjóðsins um Bryndísi Klöru. Yfirskrift hans er: ,,Látum kærleikann sigra."

Sjóðurinn var stofnaður eftir andlát Bryndísar Klöru í kjölfar árásar á Menningarnótt árið 2024.

Í samþykktum sjóðsins segir: ,,Tilgangur og markmið sjóðsins er að styðja við almannaheillarverkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni."

Þá segir einnig að sjóðurinn muni styrkja bæði fræðslu og rannsóknir sem nota megi í forvarnarskyni.

Og nú er bara að bretta upp ermar og taka virkan þátt í góðverkum.