Gott foreldrakvöld í FG

Frá foreldrakvöldi FG þann 10.mars síðastliðinn, sem tókst vel.
Frá foreldrakvöldi FG þann 10.mars síðastliðinn, sem tókst vel.

Foreldrakvöld var haldið í FG þriðjudaginn 10.mars síðastliðinn og var mæting hin ágætasta. Stjórnendur og fulltrúar skólans voru einnig mættir til að svara spurningum foreldra, en samstarf sem þetta er mjög mikilvægt fyrir skólann.

Dagskrá var fjölbreytt, en Anna Steinsen, frá KVAN, sem er námskeiðs og þjálfunarfyrirtæki, fjallaði um samskipti á milli kynslóða.

Kári Einarsson og Embla Bachmann kynntu verkefnið Riddarar kærleikans en þau voru skólasystkini Bryndísar Klöru Birgisdóttir, sem lét lífið í árás á Menningarnótt árið 2024.

Á vefsíðu verkefnisins segir meðal annars: ,,Riddarar kærleikans er hreyfing fólks sem vill lifa í samfélagi þar sem kærleikur ræður ríkjum. Á erfiðum tímum lagði faðir Bryndísar Klöru til að við myndum öll verða Riddarar kærleikans – með því að gera kærleikann að eina vopni okkar í samfélaginu. Í kjölfarið varð hreyfingin Riddarar kærleikans til.

Verkefnið byggir á virðingu fyrir fórnarlömbum ofbeldis og þeirri von að við getum sameinast um að skapa betra og öruggara samfélag fyrir komandi kynslóðir.“

Á foreldrakvöldinu fluttu svo nemendur atriði úr söngleiknum ,,Ljóska í gegn“ – sem leikfélagið Verðandi frumsýndi fyrir skömmu.

Þess má svo geta að sérstök Góðgerðarvika verður haldin í FG dagana 13. - 17.apríl næstkomandi.