Haustönn hafin

Haustönn í FG hófst þann 19.ágúst en mikil aðsókn var í nám í skólanum.
Haustönn í FG hófst þann 19.ágúst en mikil aðsókn var í nám í skólanum.

Nýtt skólaár hefst í FG miðvikudaginn 19.ágúst. Gríðarleg aðsókn var í nám í FG og heildarfjöldi umsækjenda um 1100 talsins. Skólinn var upphaflega hannaður fyrir um 500 nemendur, nú verða hátt í 800 nemendur við nám í FG.

Það er að mörgu að hyggja þegar hefja skal nám að hausti, sama hvort maður er nýnemi eða eldri nemandi. Búið er að taka á móti nýnemum með sérstökum hætti og eru þeir allir, ásamt eldri nemum, boðnir velkomnir til starfa.

FG er alfarið ,,tölvuskóli“ enda lifir nútíma fólk á netinu, ef svo má segja. Því er mjög gott að fara yfir tölvuna, taka til í henni, fara yfir stýrikerfi og athuga hvort allt sé ekki í lagi.

Dagana 24. og 25. september eru námsmatsdagar og 12.október er frídagur. Kennslu á haustönn lýkur svo 30.október.

Verið öll velkomin í FG!