Ljóska í gegn frumsýnd - mikið fjör

Ljóska í gegn er sýning full af litum og fjöri
Ljóska í gegn er sýning full af litum og fjöri

Leikfélagið Verðandi frumsýndi söngleikinn ,,Ljóska í gegn“ fyrir fullu húsi á sérstakri nemendasýningu þann 11.mars síðstliðinn í Urðarbrunni FG. Söngleikurinn er byggður á kvikmyndinni ,,Legally Blonde“ sem gerð var árið 2001 og skartaði Reese Whiterspoon í aðalhlutverki. Söngleikurinn er hluti af Imbru-dögum, dagana 11-12 mars.

,,Ljóskan“ fer núna í almenna sölu og á Tix.is segir: ,,Ljóska í gegn er sprúðlandi kraftmikill og bráðfyndinn söngleikur sem byggður er á vinsælu kvikmyndinni Legally Blonde. Ferðalag Elle er fullt af áskorunum, nýjum vináttuböndum og óvæntum uppgötvunum. Í stað þess að láta mótlætið stöðva sig tekur hún áskorununum af dirfsku og sýnir að það að vera trúr sjálfum sér er stærsti styrkleikinn.

Með glæsilegum dansatriðum, grípandi og líflegri tónlist og litríkri sviðsmynd heldur sýningin áhorfendum á tánum frá upphafi til enda. Hún sameinar húmor og hjarta á einstakan hátt og minnir okkur á mikilvægi sjálfstrausts, vináttu og þess að fylgja eigin sannfæringu – jafnvel þegar aðrir efast.

Leikstjórn er í höndum Stefáns Benedikts Vilhelmssonar, danshöfundur er Aníta Rós Þorsteinsdóttir og söngþjálfari Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Hljóðhönnun er undir stjórn Þórðar Gunnars Þorvaldssonar. Með öflugu og samstilltu teymi á bak við tjöldin og hæfileikaríkum hópi flytjenda verður sýningin að litríkri og eftirminnilegri leikhúsupplifun.“

Ritari FG.is var staddur á nemendasýningunni og þetta var STUÐ! Pottþétt sýning sem passar vel nú þegar skammdegið er að hopa og birtan eykst með degi hverjum. Full af lífi og fjöri. Nú er bara að skella sér og bera þennan frábæra leikhóp augum.