Kjörkassar
Laugardaginn 16. maí verða sveitarstjórnakosningar á Íslandi. Þá kjósum við þá sem munu stjórna sveitarfélögunum næstu fjögur árin.
Dagarnir 27.- 29. apríl eru tileinkaðir lýðræðinu. Í vikunni veltum við fyrir okkur mikilvægi þess að kjósa og hve mikilvægt það er að taka þátt í lýðræðisferlinu.
Mánudaginn 27. apríl munu fulltrúar stjórnmálaflokkana heimsækja skólann. Boðið verður upp á hraðstefnumót við flokkanna í Urðarbrunni milli kl. 10:30 og 11:20. Umsjónartíminn mun falla niður þennan dag.
Hraðstefnumótið fer þannig fram að fulltrúar flokkanna sitja við borð sem dreifast um salinn. Nemendur geta sest hjá þeim sem þeir vilja spjalla við. Hér er frábært tækifæri til að tala beint við stjórnmálamennina sem sumir munu stjórna ykkar sveitarfélagi, kynna sér áherslur þeirra og koma athugasemdum ykkar á framfæri. Á fimm mínútna fresti verður blásið í flautu og þá verða nemendur að velja annan flokk til að spjalla við.
Miðvikudaginn 29. apríl munu fara fram skuggakosningar í skólanum. Nánar um skuggakosningar hér.