Ný stjórn kosin og kynnt

Ný stjórn NFFG
Ný stjórn NFFG

Ný stjórn Nemendafélags Fjölbrautaskólans í Garðabæ var kosinn fyrir skömmu, eftir líflega kosningabaráttu. Hún er skipuð eftirfarandi:

Rakel Eva Kristmannsdóttir er forseti og Stefán Fjölnisson verður varaforseti. Róbert Hrafn Brink sér um fjármálin en Anna Kristín Elmarsdóttir verður markaðsstjóri.

María Rut Þórisdóttir sér um skemmtilegheitin sem skemmtanastjóri og Sveinn Ingi Þorbjörnsson ætlar að láta nemendur brenna kaloríum sem formaður íþróttanefndar. Þá var Andrea Sæmundsdóttir kosinn oddviti málfundarráðs.

Við óskum nýrri stjórn velfarnaðar í sínum störfum.