Opnun skrifstofu, fyrsti kennsludagur og móttaka nýnema

Skrifstofa skólans hefur nú opnað aftur að loknu sumarleyfi og er opin mánudaga til fimmtudaga frá 8-15.30 og föstudaga frá 8-15. Skólaárið hefst með nýnemakynningu klukkan 13:00 föstudaginn 14. ágúst. Þar hitta nýnemar skólastjórnendur, námsráðgjafa, umsjónarkennara og helstu leiðtoga í félagslífi nemenda.

Þriðjudaginn 18. ágúst verður námskeið í upplýsingatækni fyrir nýnema. Þá er mjög mikilvægt að tölvur séu nýuppfærðar og nemendur hafi rafræn skilríki.

Kennsla allra nemenda hefst miðvikudaginn 19. ágúst með hraðtöflu. Stundatöflur birtast í Innu í síðasta lagi 14. ágúst og bókalistar verða aðgengilegir bæði í Innu undir áföngum og einnig verður heildarlisti á heimasíðu skólans.