Sigurður Snorri er fulltrúi FG í Söngkeppni framhaldsskólanna á laugardaginn.
Söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin með pompi og prakt næsta laugardag, þann 11.apríl í Háskólabíóí og hefst gleðin kl. 20.45.
Umgjörð keppninnar er glæsileg og stórir listamenn koma fram og skemmtiatriðin lofa mjög góðu. Dómarar eru ekki af verri endanum, en þar eru á ferðinni Bríet, Helgi Björnsson og Þormóður Eiríksson, lagahöfundur og tónlistarmaður.
Svo er auðvitað mikill fjöldi keppenda úr framhaldsskólum landsins, en samkvæmt heimasíðu keppninnar eru keppendur alls 25 talsins, meirihlutinn stúlkur.
FG á auðvitað sinn keppanda og það er hann Sigurður Snorri. Hann vann undankeppnina í FG, Jarmið, fyrr á þessu ári. Mun hann flytja lagið ,,Lífið til enda með þér."
Í stuttu spjalli við FG.is sagðist Sigurður Snorri vera orðinn spenntur: ,,Já, ég er það virkilega og það hefur gengið mjög vel að æfa með hljómsveitinni. Ég er númer 16 á sviðið, af 25 atriðum," sagði Sigurður.
Á vef keppninnar segir: ,,Söngkeppni framhaldsskólanna á rætur að rekja til ársins 1982 og hefur verið haldin í núverandi mynd frá 1990. Keppnin er einn stærsti og rótgrónasti menningarviðburður framhaldsskóla landsins og hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að stíga sín fyrstu skref í söng, tónlist og sviðsframkomu.“
Miðasala á keppnina er á Tix.is og kostar aðeins 3500 krónur að fá aðgang að herlegheitunum.
FG óskar Sigurði Snorra alls hins besta í keppninn. Við erum stolt að eiga hann sem fulltrúa í þessari skemmtilegu (og nauðsynlegu) keppni.
Góða skemmtun!