Stiklur frá vorönn

Nemendur í ,,kóngsins Köben
Nemendur í ,,kóngsins Köben".

Það er mikið að gera í skólanum á vorin og það er auðvitað sá tími sem allt þarf að smella saman og störfum er lokið fyrir sumarfrí.

Hér eru nokkrar stiklur frá vorönn:

Nemendur í sögu fóru til Póllands og skoðuðu meðal annars hinar alræmdu útrýmingarbúðir í Auschwitz. Nokkuð sem það má aldrei gerast aftur. Nemendur í dönsku fóru til Kaupmannahafnar og leiklistarnemar fóru til London.

Nemendur í Erasmus-verkefni frá Noregi og Spáni komu og dvöldu um vikutíma hjá fjölskyldum í Garðabæ. Tókst vel.

Tískusýning var haldin, listsýningar voru haldnar, nemendur tóku þátt í hönnunarkeppni, árshátíð var haldin, blöð og tímarit voru gefin út. Íslenskunemendur fóru í Eddu (hús íslenskra fræða) og skoðuðu forn handrit. Fatahönnun var sýnd á göngum skólans. Söngleikurinn ,,Ljóska í gegn“ var frumsýndur á Imbrudögum.

Löggan kom í heimsókn í afbrotafræði og vakti mikla lukku, þá kom einnig dr.Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur í heimsókn síðar á önninni. FG-Flensborg dagurinn var haldinn, kosningar voru haldnar og ný stjórn NFFG tekur við í haust. Kynningar voru vegna bæjar og sveitastjórnarkosninga. Í tengslum við þær voru haldnar skuggakosningar.

Skólakynning FG var á sínum stað og á hana komu fleiri hundruð nemendur til að kynna sér skólann. Á síðustu dögum vorannar sýndu svo leiklistarnemar lokaverkefni.

Unnið var við endurnýjun á lýsingu innan skólans og er unnið við að setja upp loftræstingu, en henni er bókstaflega slakað í gegnum þakið.

Af þessu sést að það er verulega mikið í gangi í FG, enda stór vinnustaður, með tæplega 800 manns. Ritari gleymir eflaust einhverju og biðst velvirðingar á því. En svo fer nýtt skólaár í gangi í haust, nýjar annir birtast og hlutirnir og lífið rúlla áfram.