Upphaf kennslu

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 19. ágúst og kennt verður samkvæmt hraðtöflu. Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu fimmtudaginn 13. ágúst kl. 9:00.

Hraðtafla

Hægt er að sækja um töflubreytingar, um leið og opnað er fyrir stundatöflur, til fimmtudagsins 20. ágúst. Tekið skal fram að skólinn er mjög þétt setinn og því verða aðeins gerðar nauðsynlegar breytingar.

Námsgagnalisti er aðgengilegur á heimasíðu skólans þannig að nemendur geta útvegað sér námsgögn þegar þeir hafa fengið stundatöflu haustannar. Nemendur og forsjárfólk nemenda undir 18 ára hafa aðgang að kennslukerfinu Innu en nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn. Í Innu er haldið utan um nám nemenda, einkunnir og viðveru.

Bókalisti