ENSK1UB05 - Undirbúningur B
Undanfari : Fyrir nemendur sem fengu C á grunnskólaprófi eða hafa klárað ENSK1UA05.
Í boði
: Haustönn, Miðönn
Lýsing
Lögð er áhersla á að nemendur geti lesið flókna og krefjandi texta og byggi upp þverfaglegan og hagnýtan orðaforða. Nemendur fá þjálfun í að tjá sig munnlega og skriflega og rökstyðja skoðanir sínar. Nemendur tileinka sér notkun orðabóka, uppflettirita og margmiðla.
Þekkingarviðmið
- nauðsynlegum, þverfaglegum orðaforða, þ.m.t. orðasamböndum
- notkun tungumálsins, munnlegri og skriflegri, þ.m.t. greinarmerkjasetningu
- ólíkum viðhorfum og gildum í enskumælandi þjóðfélögum
Leikniviðmið
- lesa margs konar texta og beita viðeigandi lestraraðferðum
- tjá sig skýrt og hnökralaust um undirbúið efni
- taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
- skrifa formlegan og óformlegan texta og fylgja helstu rithefðum
- nýta orðabækur, uppflettirit og margmiðla
Hæfniviðmið
- skilja daglegt mál, s.s. samræður og fjölmiðlaefni
- hagnýta sér efni ritaðs texta á mismunandi hátt t.d. til að kynna efni sem nemandinn hefur undirbúið
- leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður
- taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu á skýran hátt