FEMY3tv05 - Ferilmöppur

Undanfari : MÁLV2gr05 og SKÚL2gr05 eða FATA2sg05 og TÍSK2th05 eða LEIK3ss05 og LEIK3sk05 eða HÖNN2ha05 og SKÚL2gr05
Í boði : Vorönn

Lýsing

Í áfanganum fá nemendur kennslu í að halda utan um verkefni á skipulagðan hátt með stafrænum aðferðum, til dæmis með einfaldri vefsíðu. Hvernig setja má verkefni í ferilmöppu til kynningar á sjálfum sér vegna umsókna í framhaldsnám o.s.frv.

Nemendur vinna með ljósmyndir af verkum sínum úr öðrum áföngum, sem þeir hafa safnað saman í gegnum námið í Ferilmöppu.

Heimasíður íslenskra og erlendra listamanna verða skoðaðar, gagnrýndar og greindar. Í áfanganum læra nemendur helstu aðferðir við gerð myndbanda. Í ferlinu er farið í myndhandritgerð (storyboard), myndbyggingu, myndatöku, klippingu, lokafrágang myndar og kynningu á henni. Nemendur vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum á fjölbreyttan hátt. Í öllum verkefnum er lögð áhersla á bæði einstaklings og samvinnu/hópavinnu. Nemendur skoða framhaldsnám t.d. í myndlist/ kvikmyndun/ hönnun/ arkitektúr og fatahönnun. Íslenskir og erlendir listamenn sem vinna verk með þeirri tækni sem kennd er í áfanganum verða kynntir.

Þekkingarviðmið

  • umsóknarferli í háskóla
  • hvernig íslenskir/erlendir listamenn kynna sig á heimasíðum sínum
  • helstu aðferðum við einfalda myndbandagerð
  • menntastofnunum hér heima og erlendis á sviði t.d. kvikmyndagerðar, myndlistar og hönnunar

Leikniviðmið

  • setja saman ferilmöppu þar sem hann kynnir sig og verk sín og dregur upp heiðarlega og sannfærandi mynd af sjálfum sér og list sinni
  • skrásetja verk sín stafrænt
  • leita sér upplýsinga um inntökuferli í íslenskum og erlendum háskólum
  • búa til margskonar myndbönd
  • ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann túlkar í myndböndum sínum
  • taka þátt í umræðu um hugmyndir og stuttmyndir samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt

Hæfniviðmið

  • sækja um nám og störf sem tengjast námi hans á Listnámsbraut eða Hönnunar- og markaðsbraut sem er metið með verkefnum
  • skapa myndbönd sem eru áhugaverð og persónuleg sem er metið með verkefnum
  • fjalla um hugmyndalegan og verklegan bakgrunn verka sinna sem er metið með verkefnum og munnlegri framsögn
  • taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verk sín og annarra sem er metið með verkefnum og munnlegri framsögn
Einingar: 5