FJÁF3FF05 - Fjármál fyrirtækja
Undanfari : STÆR2FJ05 og HAGF2AR05
Í boði
: Miðönn
Lýsing
Fjallað er um helstu atriði fjármálastýringar s.s. núvirðisútreikninga, ávöxtunarkröfu, útreikninga á verði skuldabréfa og hlutabréfa, útreikninga á áhættu í fjárfestingum, raun- og nafnávöxtun og helstu kennitölur í fjármálum fyrirtækja. Lögð er áhersla á að ná tökum á hagnýtum útreikningum á sviði fjármála fyrirtækja með það fyrir augum að bera saman og velja á milli ólíkra fjárfestingarvalkosta.
Þekkingarviðmið
- helstu hugtökum úr fjármálum fyrirtækja s.s.: núvirði, afkastavextir, nafnvextir og raunvextir, virði hlutabréfa og skuldabréfa, markaðsvirði fyrirtækja, mennitölugreining
Leikniviðmið
- reikna út núvirði og afkastavexti mismunandi fjárfestingarvalkosta
- reikna út verð skuldabréfa og meta áhættu
- reikna út framtíðarvirði og núvirði höfuðstóls skuldabréfa
- reikna markaðsvirði fyrirtækja og markaðsvirði hluta í fyrirtækjum
- reikna kennitölur í rekstri fyrirtækja
Hæfniviðmið
- vega og meta ólíka fjárfestingarvalkosti og velja á milli þeirra
- geta greint rekstur fyrirtækis út frá kennitölum í rekstri og metið markaðsverð fyrirtækis út frá þeim upplýsingum
- geta reiknað út bæði nafn- og raunávöxtun og reiknað inn áhrif af vísitölubreytingum á verðtryggð skuldabréf