FRAN1fr05(FR) - Framhaldsáfangi

Undanfari : FRAN1gr05
Í boði : Miðönn

Lýsing

Viðfangsefni grunnáfangans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Bætt er við orðaforða- og málfræðiþekkingu og áfram unnið með tal, hlustun, ritun og lestur í takt við hæfni- og leikniviðmið áfangans. Nemendur verði m.a. færir um að segja frá áhugamálum, skemmtunum, áformum og daglegum venjum. Einnig læra nemendur að lýsa fólki, tala um mat og að segja frá í þátíð. Nemendur öðlist aukna innsýn í menningu frönskumælandi svæða og aukið vald á framburði.

Þekkingarviðmið

  • almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
  • helstu reglum um framburð og hljómfall
  • fleiri grunnatriðum málkerfisins
  • menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða í auknum mæli

Leikniviðmið

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
  • fylgja einföldum fyrirmælum í kennslustundum
  • skilja einfalda texta af ýmsum toga sem fjalla um viðfangsefni áfangans og festa í sessi og auka orðaforða
  • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og tengist honum sjálfum og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • skrifa einfalda texta í takt við viðfangsefni áfangans
  • beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
  • beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn

Hæfniviðmið

  • greina fremur einfaldar upplýsingar í mæltu máli
  • eiga einföld samskipti á frönsku við ákveðnar aðstæður
  • tala um sjálfan sig og aðra og ýmsar aðstæður daglegs lífs í ræðu og riti á einfaldan hátt
  • skilja einfalda texta af ýmsum toga og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
  • nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Einingar: 5