FRAN2PA05 - París

Undanfari : FRAN1FR05

Lýsing

Parísarborg og frönsk menning eru aðalviðfangsefni áfangans. Nemendur fræðast um sögu, menningu, helstu kennileiti og daglegt líf Parísar. Nemendur þjálfast í að afla sér þekkingar og hagnýtra upplýsinga og vinna fjölbreytt verkefni með áherslu á borgina og sérsvið sitt í námi. Verkefnin eru ýmist á frönsku eða íslensku eftir grunni nemenda. Allir nemendur læra grunnorðaforða í frönsku fyrir ferðamenn. Í ferðinni vinna nemendur fyrirfram undirbúin verkefni og afla sér upplýsinga fyrir lokaverkefni. Áfanginn er opinn öllum nemendum skólans en nemendur í frönsku og á fatahönnunar- og myndlistarsviði hafa forgang.

Þekkingarviðmið

  • ýmsum þáttum í sögu og menningu Parísarborgar þ.m.t. fatahönnun og myndlist
  • staðháttum, skipulagi og helstu kennileitum Parísarborgar
  • mannlífi Parísar; daglegu lífi Parísarbúa, samgöngum og atvinnulífi
  • grunnorðaforða sem nýtist í algengum aðstæðum daglegs lífs í franskri borg
  • sérhæfðari orðaforða í samræmi við sérsvið (tíska/myndlist/tungumál)

Leikniviðmið

  • afla sér hagnýtra upplýsinga fyrir ferð og á meðan ferð stendur og vinna úr þeim á sjálfstæðan hátt
  • vinna með öðrum nemendum að ýmsum verkefnum
  • lesa mismunandi texta um sögu og menningu Parísar og geta greint aðalatriði þeirra
  • bjarga sér á frönsku sem ferðamaður í nokkrum mismunandi samskiptaaðstæðum
  • lýsa völdum minnismerkjum, listaverkum eða hönnunarsögu á frönsku og/eða íslensku
  • kynna staði og staðhætti munnlega á frönsku og/eða íslensku
  • skrifa um og segja frá upplifun ferðarinnar og athöfnum sínum á skipulegan og skýran hátt á frönsku og/eða íslensku

Hæfniviðmið

  • miðla upplýsingum til annarra nemenda munnlega og skriflega á frönsku og/eða íslensku
  • taka þátt í stuttum samtölum við innfædda á frönsku í nokkrum daglegum aðstæðum
  • afla sér upplýsinga á vettvangi um sérhæfð málefni
  • greina listrænt gildi eða hönnunarlegt samhengi þess sem skoðað er í ferðinni
  • gera grein fyrir reynslu sinni af ferðinni á ýmsan hátt, bæði skriflega og munnlega
  • miðla upplýsingum til annarra nemenda í hópnum munnlega og skriflega.
Einingar: 5