ÍÞRÓ2fi1,5 - Fimmvörðuháls

Undanfari : Enginn
Í boði : Haustönn

Lýsing

Áfanginn er aðeins verklegur fyrir utan bóklegan undirbúningstíma til að fara yfir búnað, undirbúning og skipulag. Markmiðið er að nemandinn fái innsýn og geti sjálf stundað útivist í náttúrunni og sé tilbúin við ólíkar íslenskar aðstæður.Stefnt er að því að nemendur fari í eina langa gönguferð (Fimmvörðuháls) ásamt einni styttri.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtakinu útivist og gildi hennar fyrir líkama og sál.
  • Skipulagningu og undirbúningi gönguferða í náttúru Íslands.
  • Öryggisatriðum er varða ferðalög og útivist.
  • Umgengni um náttúruna og skilning á umhverfisvitund.
  • Gildi góðrar leiðsagnar og hlutverki leiðsögumanns.
  • Nýtingu frítíma til útivistar.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Undirbúa og skipuleggja gönguferðir.
  • Meta eigin getu og styrk til fjölbreyttrar útivistar.
  • Skipuleggja og nýta frítíma til útivistar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þekkingu sína og leikni til að:

  • Lesa í landslag og meta öryggi við ástundun útivistar.
  • Átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi.
  • Meta náttúru landsins og sýna rétta umgengni við hana.
  • Skipuleggja viðburði eða ferðir fyrir lítinn hóp.

Einingar

 1,5