ÍÞRÓ2fj1,5 - Fjallganga

Undanfari : Enginn
Í boði : Haustönn, Vorönn

Lýsing

Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing, þrek og úthald. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi fjallgöngu og útivistar. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfun og útiveru.

Þekkingarviðmið

  • hversu mikilvægt er að vera vel útbúin til útivistar
  • helstu fjöll á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni

Leikniviðmið

  • ganga sér til heilsubótar
  • nýta sér útivistarsvæði í nágrenninu til heilsubótar
  • notkun staðsetningartækja og korta
  • bæta félagsfærni og upplifa íslenska náttúru

Hæfniviðmið

  • átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
  • vinna með öðrum og vera hluti af hópi

Upplýsingar um áfangann

Farið verður í fimm fjallgöngur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Áfanginn liggur utan stundatöflu og hver ganga er í kringum 4 – 5 klst.