ÍÞRÓ2GA1,5 - Ganga

Undanfari : Enginn
Í boði : Haustönn, Vorönn

Lýsing

Lýsing

Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi gönguferðar og útivistar. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfun og útiveru.

Þekkingarviðmið

  • hversu mikilvægt er að vera vel útbúin til útivistar
  • helstu gönguleiðum á höfuðborgarsvæðinu

Leikniviðmið

  • ganga sér til heilsubótar
  • nýta sér útivistarsvæði í nágrenninu til heilsubótar
  • notkun staðsetningartækja og korta
  • bæta félagsfærni

Hæfniviðmið

  • átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
  • vinna með öðrum og vera hluti af hópi