MÁLV3ao05 - Akríl-og olíumálun
Undanfari : MÁLV2gr05
Í boði
: Haustönn
Lýsing
Áhersla verður lögð á að kenna og þjálfa nemendur í að mála málverk mð akrýllitum, blandaðri tækni og olíulitum með því að vinna markvisst ferli frá frumskissu , tilraunum með liti, form og myndbyggingu og til lokaniðurstöðu. Nemendur læra að strekkja striga á blindramma. Haldið áfram að þróa vatnslitamálun sem skissutæki fyrir málverk og vinna málverk með blandaðri tækni þar sem m.a. verður unnið með því að teikna og mála samhliða í sömu mynd. Nemendur vinna að mestu eftir eigin hugmyndum. Áhersla er lögð á að nemendur hengi upp verk sín og skoði þau í samhengi og þjálfist í að ræða um þau. Nemendur kynnast verkum íslenskra samtímalistamanna bæði í tímum og með því að fara á sýningar og einnig völdum verkum erlendra málara sem tengjast efni áfangans
Þekkingarviðmið
- hvernig nota á akrýlliti og olíuliti við gerð málverka
- hvernig blanda má teikningu og ýmsum efnum í málverk
- hvernig valdir myndlistarmenn vinna málverk sín
Leikniviðmið
- mála tvívíð verk með fjölbreyttri tækni og efni
Hæfniviðmið
- mála myndverk með mismunandi litum og tækni, frá frumskissu til lokamálverks og ganga frá því í blindramma
- verkefnum