TEIK2TG05 - Teikning og grafík
Undanfari : TEIK1GR05
Í boði
: Miðönn
Lýsing
Í áfanganum er farið dýpra í að þjálfa teikningu eftir fyrirmyndum með fjölbreyttum teikniáhöldum, s.s. mismunandi gerðum blýanta, penna, bleki og penslum, kolum og litaðri krít. Einnig læra nemendur a.m.k. eina grafíkaðferð með djúpþrykki - að rista teikningu í álplötu og þrykkja með olíugrafíklitum á pappír. Nemendur halda áfram að þjálfast í markvissri skissugerð og hugmyndavinnu og að þjálfast í að kynna, greina og ræða um eigin verk og annarra á sem uppbyggilegastan hátt. Íslenskur listamaður einn eða fleiri kynntir og reynt að tengja verk þeirra verkefnum áfangans bæði í tímum og með því að fara á sýningar.
Þekkingarviðmið
- hvernig teikning getur verið tæki til sjálfstæðrar listsköpunar auk þess að vera tæki til skissu- og hugmyndavinnu
- hvernig nota má fjölbreytt teikniáhöld við sköpun
- hvað sé grafík og hvernig búa skal til myndverk með djúpþrykki
- hversu mikilvægt sé að vinna jafnt og þétt skissu- og hugmyndavinnu
- hvernig listamenn undirbúa listsköpun sína
Leikniviðmið
- teikna á fjölbreyttan hátt og með mismunandi áhöldum
- gera grafíkmyndir með djúpþrykki
- undirbúa eigin listsköpun með mismunandi aðferðum við skissu- og hugmyndavinnu
- ræða og gagnrýna á uppbyggilegan hátt um eigin verk og annarra
Hæfniviðmið
- undirbúa eigin sköpun
- verkefnum
- nota teikningu sem listaverk í sjálfu sér
- verkefnum
- búa til grafíkverk
- verkefnum
- vera gagnrýninn og geta metið eigin listsköpun
- verkefnum og munnlegri framsögn