FRAN1fr05(FR) - Framhaldsáfangi
Undanfari : FRAN1gr05
Í boði
: Miðönn
Lýsing
Viðfangsefni grunnáfangans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Bætt er við orðaforða- og málfræðiþekkingu og áfram unnið með tal, hlustun, ritun og lestur í takt við hæfni- og leikniviðmið áfangans. Nemendur verði m.a. færir um að segja frá áhugamálum, skemmtunum, áformum og daglegum venjum. Einnig læra nemendur að lýsa fólki, tala um mat og að segja frá í þátíð. Nemendur öðlist aukna innsýn í menningu frönskumælandi svæða og aukið vald á framburði.
Þekkingarviðmið
- almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- helstu reglum um framburð og hljómfall
- fleiri grunnatriðum málkerfisins
- menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða í auknum mæli
Leikniviðmið
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- fylgja einföldum fyrirmælum í kennslustundum
- skilja einfalda texta af ýmsum toga sem fjalla um viðfangsefni áfangans og festa í sessi og auka orðaforða
- taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og tengist honum sjálfum og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
- skrifa einfalda texta í takt við viðfangsefni áfangans
- beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
- beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
Hæfniviðmið
- greina fremur einfaldar upplýsingar í mæltu máli
- eiga einföld samskipti á frönsku við ákveðnar aðstæður
- tala um sjálfan sig og aðra og ýmsar aðstæður daglegs lífs í ræðu og riti á einfaldan hátt
- skilja einfalda texta af ýmsum toga og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi