Afstaða í heimsókn

Védís, Ingólfur og Guðmundur komu frá réttindafélagi fanga, Afstöðu og fræddu nemendur í Afbrotafræð…
Védís, Ingólfur og Guðmundur komu frá réttindafélagi fanga, Afstöðu og fræddu nemendur í Afbrotafræði.

Fulltrúar frá Afstöðu, réttindafélagi fanga á Íslandi, komu í heimsókn í afbrotafræði (sem Gunnar og Sigrún kenna), þann 3.mars síðastliðinn og kynntu starfsemi félagsins fyrir nemendum. Þetta var í fyrsta sinn sem Afstaða kemur í heimsókn í afbrotafræði.

,,Afstaða-réttindafélag er félag sem starfar sem málsvari og stuðningsaðili fyrir frelsissvipta og fjölskyldur þeirra á jafningagrundvelli,“ sagði í kynningunni sem formaðurinn Guðmundur Ingi Oddsson, sá að mestu leyti um. En með honum voru einnig Ingólfur Snær Víðisson og Védís Einarsdóttir.

Félagið var stofnað árið 2005 til að tryggja að rödd þeirra sem hafa setið í fangelsi fái vægi í samfélagslegri umræðu og í mótun stefnu stjórnvalda. Mikil umræða hefur verið að undanförnu um málefni fanga og hafa stjórnvöld ákveðið að byggja nýtt fangelsi fyrir tugi milljarða króna á sama stað og Litla-Hraun er nú. Hið nýja kallast því ,,Stóra-Hraun.“

Var kynningin af fróðlega og voru góðar umræður, en hér er auðvitað um svið að ræða sem nemendur vita flestir lítið um. Og kannski almenningur yfir höfuð, ef út í það er farið.