Ekki meira Gettu betur í ár hjá FG

Patrik, Aron og Brynja í sjónvarpssal.
Patrik, Aron og Brynja í sjónvarpssal.

Lið FG lauk keppni að þessu sinni í Gettu betur þegar liðið mætti ríkjandi meisturum, MR, í sjónvarpssal fimmtudaginn 15.febrúar.
Viðureignin var nokkuð sveiflukennd, en lauk síðan með því að MR sigraði með aðeins fjögurra stiga mun, 30-26.

Fram kom í þættinum að þau Patrik, Aron og Brynja eru öll að útskrifast í vor og því verður FG með splunkunýtt lið í næstu keppni, að ári.

Eru þeim hér með færðar kærar þakkir fyrir góða keppni og óskir um gott gengi í framtíðinni.

Takk fyrir okkur!