Á lokakvöldinu var bæði matur og karaoke
Hópur frá FG á vegum Erasmus+ var staddur í Noregi dagana 18. til 23. janúar síðastliðinn og bjó hjá norskum krökkum sem eru nemendur í Skedsmo-framhaldsskólanum i Lilleström í Noregi.
Einnig var hópur frá Spáni með og er verkefnið samstarfsverkefni á milli landanna þriggja um sögu, menningu, hefðir og venjur þjóðanna. Það voru Sif Þráinsdóttir og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson sem voru fararstjórar.
Ýmislegt var gert sér til dundurs; farið á söfn, í ratleik um Osló, nýsköpunarverkefni skoðuð og dæmd og svo voru nemendur einnig bara líka í skólanum og að ,,chilla“ hvert með öðru (afsakið slettuna).
En hápunkturinn var eflaust útivistardagur í nágrenni Holmenkollen-skíðastökkspallsins fræga í Osló, miðvikudaginn 21. janúar. Þar var farið á sleða í braut sem er um 3ja kílómetra löng. Veðrið var frábært, mikið ,,sleðað“ og síðan grillaðar pylsur á logandi eldi, það tilheyrir.
Sleðaaksturinn gekk almennt vel, aðeins var um nokkra frekar léttvæga ,,pústra“ að ræða – bæði meðal nemenda og kennara. Farsími týndist en gerður var út leitarleiðangur og kom síminn í leitirnar. Eigandinn gat því varpað öndinni léttar enda er nútímafólk nánast ,,lamað“ án farsíma.
Lokakvöld fór svo fram fimmtudaginn 22. janúar og þá hittust allir í skólanum síðdegis. Komið var með mat og drykk og meðal annars farið í karaoke, þar sem segja má að íslenski hópurinn hafi farið á kostum. Tekið var lag úr kvikmyndinni/söngleiknum Grease, það var jóðlað og hvað eina. Sungið var og trallað af miklum krafti. Á föstudeginum fóru svo bæði Íslendingarnir og Spánverjarnir til síns heima heima. Afar góð stemmning var hjá nemendum og var FG-hópurinn skólanum (og sjálfum sér) til mikillar prýði.
Mynd/samsett: Sleðakennsla og pylsugrill, Sif í gulum jakka, vel klædd í kuldanum.
