FG lauk keppni í Morfís

Frá ræðukeppni FG gegn Kvennó í Morfís.
Frá ræðukeppni FG gegn Kvennó í Morfís.

Lið FG lauk keppni í Morfís (Mælsku og rökræðukeppni framhaldsskólanna á Íslandi) þann 26.janúar þegar liðið mætti Kvennó fyrir fram þéttsetinn Urðarbrunn.

Keppnin var að sögn geysispennandi og þegar upp var staðið munaði aðeins 100 stigum á liðunum, Kvennaskólinn fékk 1331 stig,  en FG 1231.

Guðrún Fjóla Ólafsdóttir, stuðningsmaður FG, var valin ræðumaður kvöldsins.